Fréttir
14.1.2011
Háskólinn í Reykjavík heldur vinnusmiðju NKG 2011
Háskólinn í Reykjavík (HR) og Nýsköpunarkeppni grunnskólanemenda (NKG) undirrituðu samkomulag í gær um að HR verði á meðal bakhjarla nýsköpunarkeppninnar á næstu árum.
Undir samstarfsamninginn rituðu Gunnar Guðni Tómasson, forseti tækni- og verkfræðideildar HR, Björn Þór Jónsson, forseti tölvunarfræðideildar HR og Anna Þóra Ísfold, framkvæmdastjóri NKG.
Fulltrúi unga fólksins var einnig viðstaddur undirritun þessa samnings en Jóhanna Höeg Sigurðardóttir er jafngömul keppninni og hefur unnið hana í tvígang, auk þess sem systur hennar hafa báðar hlotið verðlaun fyrir hugmyndir sínar í keppninni.
Jóhanna tók síðast þátt í keppninni fyrir þremur árum og vann þá með hugmynd að fiðurfesti fyrir fuglabúr, en hún lýkur stúdentsprófi frá Fjölbrautaskóla Suðurlands um áramótin og heldur í kjölfarið til Danmerkur í lýðháskóla.
Nýsköpunarkeppni grunnskólanemenda fagnar á næsta ári 20 ára afmæli sínu. Keppnin er ætluð öllum aldurshópum grunnskólans og fer fram allan ársins hring. Í gegnum árin hafa þúsundir snjallra hugmynda og uppfinninga litið dagsins ljós, en þess má geta að bara á síðustu þremur árum hafa um 8.000 hugmyndir verið sendar inn frá um 80 grunnskólum. Tilgangur samstarfsins er að styðja þetta verkefni á breiðum grunni sem og efla áhuga barna og unglinga á tölvu- og verkfræðigreinum. Svo gripið sé til gamallar klisju má með sanni segja að „oft var þörf en nú er nauðsyn“.
Marel, sem stutt hefur keppnina frá upphafi, og HR verða því aðalbakhjarlar keppninnar á næsta ári. Í samstarfi HR við NKG felst að skólinn leggur verkefninu til alla fundaraðstöðu og aðstöðu fyrir matsferli. Þá skuldbindur skólinn sig til að útbúa vinnusmiðju fyrir grunnskólanemendur í húsnæði skólans. HR styrkir keppnina ennfremur með fjárframlagi og starfsmenn HR leggja fram vinnu sína á öllum stigum keppninnar.
Verndari keppninnar er Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Íslands.
Umfjöllun um undirritun í Fréttablaðinu:
http://vefblod.visir.is/index.php?s=4633&p=104160
tekið af vef www.ru.is








