Um NKG
Nýsköpunarkeppni grunnskólanemenda (NKG) er keppni í nýsköpun fyrir alla aldurshópa grunnskólans. Keppnin fer fram allan ársins hring. Tilgangur keppninnar er að virkja sköpunarkraft barna og unglinga í landinu. Lokahóf er á haustin að undangenginni vinnusmiðju þar sem hugmyndir sem komast í úrslit eru útfærðar frekar með aðstoð leiðbeinenda. Tekið er á móti hugmyndum til 15. júní ár hvert.
Sá skóli sem hlutfallslega sendir inn flestar hugmyndir í keppnina fær til vörslu þennan glæsilega farandbikar:








