Ferli
Á lokahófi hvers árs er næsta keppni ræst. Eftir það geta nemendur á öllum skólastigum grunnskólans unnið að því að skila inn hugmyndum sínum. Þegar hugmyndin er tilbúin er mikilvægt að umsókn sé unnin vandlega og skilað inn fyrir 15. júní ár hvert.
Þegar skilafrestur hugmynda rennur út fara þær í ákveðið matsferli. En hugmyndirnar eru metnar í úrslit á þremur stigum, forstigi, miðstigi og lokastigi. Matsferlið er unnið af nefnd sem skipuð er aðilum úr skóla-umhverfinu og atvinnulífi.
Nefndin skilar af sér 50 til 60 hugmyndum sem komast í úrslit. Það þýðir að börnin sem þennan heiður hljóta eru kölluð til vinnusmiðju. Þar eru hugmyndir útfærðar frekar með aðstoð leiðbeinenda í formi veggspjalda og frumgerðar. Að því loknu tekur verðlaunanefndin við og sér um að velja þær uppfinningar sem munu hljóta verðlaun.
Lokahóf er haldið í kjölfarið, þar sem Forseti Íslands hr. Ólafur Ragnar Grímsson verndari keppninnar afhendir verðlaun. Einnig er uppfinningasýning á verkum barnanna sett upp í lokahófinu.








