Matsferli
Forstig
Á forstigi fara 16 fulltrúar matsnefndar í gegnum allar innsendar hugmyndir í fjórum þriggja manna hópum. Hver hópur skilar af sér ákveðnum fjölda hugmynda sem standa eftir. Á þessu stigi eru hugmyndir metnar út frá hagnýti.
Miðstig
Á miðstigi fara 5 fulltrúar matsnefndar í gegnum þær sem komast áfram úr forstigi, gera má ráð fyrir 800 hugmyndum sem fara í gegnum miðstig þar sem þær eru metnar út frá nýnæmi.
Á þessu stigi er leitað í nánasta umhverfi, fyrirtækja, stofnana og skóla. Leitað er upplýsinga um hvort hugmyndin sé þegar til.
Lokastig
Á lokastigi fara 5 fulltrúar matsnefndar í gegnum þær hugmyndir sem koma úr miðstigi og velja úr þær sem komast í úrslit með tilliti til markaðshæfi.
Þær hugmyndir sem komast í úrslit eru skoðaðar nánar og sérstök matslýsing útbúin fyrir hverja og eina.








