Matsferli NKG 2010
Að matsferlinu í ár komu fulltrúar víðsvegar að frá stofnunum, félögum og atvinnulífinu. Verkefnið var krefjandi þar sem hugmyndir barnanna á lausnum við hinum ýmsu vandamálum voru óteljandi, jafnt stórum sem smáum. Hönnun stóla var áberandi í ár ásamt ýmsum sköpunarverkum. Tölvuleikjagerð var vinsæl og margt annað sem gefur vísbendingar um frábæra kennslu í nýsköpunarmennt.
Efri röð frá vinstri: Guðvarður B. Halldórsson (Seljaskóla), Eiríkur Rögnvaldsson (Hí), Kári Harðarson(HR), Róbert Pétursson(HR) og Gísli Freyr Þorsteinsson (HR). Neðri röð frá vinstri: Pétur Kristjánsson (Samorku), Þorsteinn Jónsson (HÍ) og Eiríkur Hilmarsson (HÍ). Þarna má sjá umsóknir ársins sem ekki komast í úrslit í fanginu á Róbert en Gísli heldur á glóðvolgum bunka sem fer í matsferli II.
Í matsferli II voru: Viðar Helgason (Hí), Sólrún Halldórsdóttir (FíKNF), Sigurður Ágústsson (Samorka) og Hulda Hreiðarsdóttir (FAFU).








