Framkvæmd
NKG - verkefnalausnir í samstarfi við Mennta- og menningarmálaráðuneytið sér um rekstur, framkvæmd og þróun Nýsköpunarkeppni grunnskólanemenda
Hlutverk
Hlutverk NKG verkefnalausna er að nýta þekkingu til reksturs alhliða verkefna- og viðburðarþjónustu fyrir félagasamtök, stofnanir og fyrirtæki.
Starfsemin lýtur að því að veita ráðgjöf, skipuleggja og framkvæma með vönduðum vinnubrögðum svo að verkefnin nái settum markmiðum.
Starfsmaður
Anna Þóra Ísfold, framkvæmdastjóri
Anna sér um skipulagningu og framkvæmd Nýsköpunarkeppni grunnskólanemenda. Hún er tengiliður við kennara og skólastjórnendur í grunnskólum landsins, sér um tengingu NKG við atvinnulífið og eflingu samstarfs við vel valda aðila. Hún stýrir þróunar- og skipulagsnefnd NKG auk þess sem hún er vefstjóri heimasíðu NKG.
Anna er viðskiptafræðingur að mennt. Hún hefur víðtæka starfsreynslu á sviði ráðgjafar, fjármála og rekstrar. Netfang:annaisfold@internet.is








