Beint á leiðarkerfi vefsins

Nýsköpunarmennt

Aðalnámskrá grunnskóla frá 2008

Nýsköpun og hagnýting þekkingar snýr að því að virkja hugmyndir nemenda um það á hvern hátt má nota þekkingar- og færnisvið hverrar námsgreinar til að leysa vandamál, uppfylla þarfir eða skapa önnur gæði sem máli skipta. Tilgangurinn er að efla siðvit nemandans og frumkvæði í gegnum skapandi starf þar sem nemandi þjálfast í kerfisbundnum aðferðum við að útfæra hugmyndir sínar frá fyrstu hugdettu til lokaafurðar.

Áhersla verði lögð á að tengja hugmynda- og verkefnavinnu nemenda við raunverulegar aðstæður, hvernig þekking og færni skólanámsins birtist í starfsemi samfélagsins, í heimabyggð, þjóðfélagi og í alþjóðlegu samhengi. Nýsköpun og hagnýting þekkingar verði þannig í senn starfsfræðsla og nýsköpunargrein.

Gera má ráð fyrir að nýsköpun og hagnýting þekkingar geti komið inn í skólastarfið á þrennan hátt. Í fyrsta lagi samþættist hún beint við tíma annarra(r) greina(r). Í öðru lagi getur skólinn nýtt eigin ráðstöfunartíma fyrirgreinina. Í þriðja lagi má blanda saman þessum tveimur aðferðum.

Nýsköpun og hagnýting þekkingar greinist í þrjá efnisþættir:
- Upplýsinga- og tæknilæsi
- Hugmynd, lausn, afurð
- Einstaklingur, tækni og samfélag

Hér einbeitum við okkur að hugmynd, lausn og afurð.

Þessi efnisþáttur felur í sér tileinkun nemandans á aðferðum við að raungera hugmynd, frá fyrstu hugdettu að llokaafurð. Lögð er áhersla á að nemendur læri fagleg vinnubrögð við hugmyndavinnu, útfærslu og framleiðslu afurðar.

Lokamarkmið (smellið hér)

Aðalnámskrá lög nr. 31/2008 bls. 31-45

 

 


Auglýsingar

 


 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Samstarfsaðilar

Styrktaraðilar

Spakmæli

„Eduard Haas fann upp lausnina fyrir Pez nammi árið 1927“


Slóðin mín:

Nýsköpunarmennt

Stjórnborð

Forsíða vefsins Stækka letur Minnka letur Senda þessa síðu Prenta þessa síðu Veftré Hamur fyrir sjónskerta

Mynd

Börn og forsetinn