Kennsluefni
Árið 2008 hlaut NKG styrk til að þýða og staðfæra nýtt kennsluefni til nýsköpunarmenntar frá þróunarsjóði námsgagna. Sérfræðingarnir Svanborg R. Jónsdóttir og Gísli Þorsteinsson voru fengin til að staðfæra efnið að íslensku samfélagi.
Í kjölfarið tók Námsgagnastofnun við, sá um umbrotsvinnu, prentun og dreifingu. Guðríður Sigurðardóttir hjá Námsgagnastofnun var verkefninu innan handar allan tíman og sá um störf ritstjóra í samstarfi við Önnu Þóru Ísfold hjá NKG.
Kennsluefnið er sett upp í þrjá meginkafla: Hugmynd, hönnun og framkvæmd. Í hverjum kafla eru æfingar sem má bæði nýta í hópstarfi sem og einstaklingsverkfenum. Skipulag bókarinnar gefur kennurum kleift að skipta með sér verkum eftir greinum. En nýsköpunarmennt er ætlað að kenna þvert á námsgreinar. Þannig gætu bekkjarkennarar kennt kaflann um að fá hugmynd, verkgreinakennarar, kaflann um hönnun og deilt síðasta kaflanum með kennurum í upplýsingatækni og lífsleikni.
Lögð er rík áhersla á aðferðafræði í kennslubókinni, efnið er afar aðgengilegt, sett upp af iðnhönnuðum og sérfræðingum í kennslufræðum í Svíþjóð.
Kennsluefnið er hægt að panta gjaldfrjálst fyrir grunnskóla af vef Námsgagnastofnunar :

Smellið á myndina til að komast á vef Námsgagnastofnunar
Hér má finna skrá sem samanstendur af æfingum í bókinni sem er hægt að prenta út eftir hentisemi:








